Á Íslandi glímir ótrúlega fjölbreyttur hópur við snjóflóð. M.a. arkitektar og verkfræðingar í sambandi við mannvirkjagerð, hættumatssérfræðingar og starfsfólk sveitafélaga við skipulagsgerð. Sérfræðingar á snjóflóðavakt, snjóathugunarmenn, starfsfólk almannavarna og lögreglu. Leiðsögumenn í vetrarferðum hvort sem það er á skíðum, vélsleðum, þyrlum, snjótroðurum eða tveimur jafnfljótum. Starfsfólk skíðasvæða, snjóruðningsfólk, björgunarsveitarfólk, aðgerðarstjórnendur, þjálfarar snjóflóðahunda. Og svo lengi mætti telja.
Vorið 2023 komu saman fulltrúar frá Veðurstofunni, Vegagerðinni, Félagi Fjallaleiðsögumanna, Slysavarnarfélaginu Landsbjörg og Samtökum Skíðasvæða. Tilgangurinn var að stofna samtök með það markmið að búa til samráðsvettvang fyrir málefni tengd snjóflóðum. Fyrirmynd að slíkum samtökum kemur erlendis frá en Íslendingar hafa tekið þátt í öðrum landssamtökum s.s. Norsk Skredfaglig Forening, Canadian Avalanche Association og American Avalanche Association.
Ef þú starfar við snjóflóð, hvort sem það er launað starf eða í sjálfboðavinnu og hefur áhuga á að taka þátt í að stofna og móta Snjóflóðasamtök Íslands þá óskum við eftir því að þú smellir á hlekkinn hér fyrir neðan og fyllir út formið. Við munum svo senda póst á alla sem lýst hafa yfir áhuga þegar staður og stund hefur verið ákveðin fyrir stofnfund.