Snjóflóðaráðstefnan 2024
Snjóflóðasamtök Íslands standa fyrir ráðstefnu um snjóflóðamál þann 10. október 2024 í húsi Verkís, Ofanleiti 2, Reykjavík. Ráðstefnan er opin öllum áhugasömum og er viðfangsefnið valið sérstaklega til þess að höfða til breiðs hóps af áhugafólki og fagfólki.
Þema þessarar fyrstu ráðstefnu Snjóflóðasamtakanna er “snjóflóð af mannavöldum” og verða áherslur ráðstefnunnar eftirfarandi:
1. Mat á snjóflóðahættu: Hvernig snjóflóðahætta er metin af mismunandi aðilum. Hér getur áherslan verið allt frá svæðisbundinni snjóflóðaspá Veðurstofunnar að mati á snjóflóðaaðstæðum á skíðasvæðum eða leiðarvali leiðsögumanna og einstaklinga í snjóflóðalandslagi.
2. Mannlegi þátturinn: Snjóflóð af mannavöldum eru alltaf samspil mannlegra þátta og snjóaðstæðna. Hér er áherslan á það sem snýr að mannlega þættinum. Hvernig eru ákvarðanir teknar og hvað hefur áhrif á þær?
3. Snjóflóðaatvik: Það er mikilvægt að læra af þeim atvikum sem koma upp, hvort sem það eru slys eða atvik þar sem hefði getað orðið slys. Hvatt er til þess að fólk deili reynslu sinni af snjóflóðum af mannavöldum. Einnig er óskað eftir erindum um viðbragð og björgun í snjóflóðaslysum í óbyggðum.
4. Snjóalög og vísindi: Hér er áherslan á myndun óstöðugra snjóalaga og varðveislu veikleika í snjónum.
Óskað er eftir tillögum um erindi og rennur fresturinn út þann 15. september.
Ráðstefnugjald:
Ókeypis fyrir fyrirlesara.
2000 kr. fyrir félaga og nema.
5000 kr. fyrir aðra.
Skráning fer fram hér: https://forms.gle/XL3ZG54TxGNF7x9P7
Snjóflóðaspár Veðurstofu Íslands
Opið málþing SNÍS febrúar 2024
Óliver Hilmarsson fjallar um notkun og gerð Snjóflóðaspáa Veðurstofu Íslands.
Helstu atriði um Ýla
Opið málþing SNÍS 2024
Stefán Jökull Jakobsson fjallar ítarlega um ýla og notkun þeirra.
Continue reading “Helstu atriði um Ýla”
Á vakt fyrir Ísland – Ofanflóð
Lára Bettý Harðardóttir, hjúkrunarfræðingur HSN Dalvík, Bryndís Elva Bjarnadóttir, EMT-A, hjúkrunarfræðingur SAK og Kári Erlingsson, varðstjóri hjá Lögreglunni á Akureyri fjalla um viðbrögð við snjóflóði í Svarfarðardal vorið 2023. Continue reading “Á vakt fyrir Ísland – Ofanflóð”
Snjóflóðamenning á Íslandi
Hvernig er menningin á Íslandi gagnvart snjóflóðum og hvert viljum við stefna? Erla Guðný Helgadóttir jarðfræðingur á snjóflóðasetri Veðurstofu Íslands og kennari við fjallamennskunám FAS fer yfir það með okkur á Opnu Málþingi um Snjóflóð. Continue reading “Snjóflóðamenning á Íslandi”
Sjónarhorn viðbragðsaðilans
Hvert eru sjónarhorn viðbragðsaðilans í snjóflóðaútköllum? Anton Berg Carrasco sviðsstjóri Snjóflóðasviðs hjá Björgunarskóla Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og varðstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar fer yfir það með okkur á Opnu Málþingi um Snjóflóð. Continue reading “Sjónarhorn viðbragðsaðilans”
Snjóflóðastjórnun í Hlíðarfjalli
Hvernig fer fram Snjóflóðastjórnun í Hlíðarfjalli? Jón Páll Eyjólfsson sprengjustjóri hjá 1001 Tindum fer yfir það með okkur á Opnu Málþingi um Snjóflóð. Continue reading “Snjóflóðastjórnun í Hlíðarfjalli”
Notkun líkana við hönnun snjóflóðamannvirkja
Hvernig eru snjóflóðamannvirki hönnuð? Kristín Martha Hákonardóttir verkfræðingur hjá Verkís fer yfir það með okkur á Opnu Málþingi um Snjóflóð. Continue reading “Notkun líkana við hönnun snjóflóðamannvirkja”