Velkomin á Opið Snjóflóðafræðslukvöld!
Snjóflóðasamtök Íslands og Félag Fjallaleiðsögumanna á Íslandi bjóða upp á frábæra dagskrá í Tónabíó, kl. 19:30 þann 8.janúar.
Dagskrá kvöldsins lítur svona út:
-
- Fulltrúar stjórnar SNÍS kynna starfið og dagskrá vetrarins, þar á meðal landshlutaviðburði á skíðasvæðum landsins.
- Fjallaleiðsögumaðurinn Jón Heiðar Andrésson ræðir undirbúning og ákvarðanatöku í snjóflóðaumhverfi.
- Frá Veðurstofunni mæta Haukur Hauksson og Óliver Hilmarsson kynna nýjan vef Veðurstofunnar, snjóflóðaspár og nýjar snjóflóðasíður.
- Skíðabíó frá Noregi með snjóflóðaívafi í boði RAB.
- Loks Happdrætti með mögnuðum vinningum!
Í hléum verða kynningarbásar með búnaði og námskeiðum en hægt verður að skrá sig á snjóflóðanámskeið fyrir veturinn.
Sjáumst á fimmtudaginn!



