Manuel Genswein með “Pre-season Webinar”

Einn helsti sérfærðingur heims á sviði leitar og björgunar í snjóflóðum ætlar að halda fyrir okkur tvö fræðslukvöld þar sem farið verður yfir bestu aðferðarfræði og hvað ber að varast miðað við nýjustu rannsóknir og lærdóma úr raunveruleikanum.

Manuel Genswein hefur verið leiðandi í rannsóknum á hvernig best er að framkvæma björgun í snjóflóðum í áratugi og hefur m.a. þróað aðferðir sem nánast allir í heiminum í dag læra á snjóflóðanámskeiðum. Í dag leiðir hann Mountain Safety Info sem er samansafn af ferlum og kennsluleiðbeiningum.

Boðið verður upp á tvo kvöldfyrirlestra, þar sem fyrra kvöldið verður áhersla á að miðla þekkingu, og seinna kvöldið verður meiri tími fyrir umræður og álitamál. Dagsetningarnar eru:

11. nóvember kl. 19:30 – 21:00

18. nóvember kl. 19:30 – 21:00

Tengill á Zoom fund verður aðgengilegur í Facebook hóp félagsfólks og í tölvupósti sem sendur verður út á félaga.